0

Þjónustuskilmálar

Vefrún ehf. er verslun sem selur handverk, hágæða textilvörur og fylgihluti fyrir bútasaum.

Vefrún ehf. 
Kt. 500725-0520

 Akurgerði 12
190 Vogum
sími 864-0915
vefrun@vefrun.is

7

Skilareglur

Skilmálar á við um vörukaup í vefverslun Vefrúnar ehf

Verð á sendingum reiknast skv. verðskrá Dropp eða Póstsins. 

Heðfbundinn afhendingartími eru 1-3 virkir dagar frá því að pöntun er gerð.  

Hægt er að velja að sækja vörur í verslun og afhendast þær á afgreiðslutíma verslunar. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu í tölvupósti þegar varan er tilbúin til afhendingar. 

Pantanir eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnarVefrún ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

Skilareglur (á við um vörur keyptar í verslun)

Vöru sem skilað er endurgreiðist með inneignarnótu. Inneignarnótur gilda ekki á útsölu né á lagersölu.

Sérpöntuðum vörum er ekki hægt að skila

Vöru er einungis hægt að skila eða skipta gegn framvísun kassakvittunar eða að vara sé merkt með skilamiða Vefrúnar.

Vörum sem skilað er þurfa að vera í góðu ástandi; upprunalegum umbúðum, með upprunalegum merkingum og ónotuð.

Metravöru og vörum sem keyptar eru á útsölu eða lagersölu fæst hvorki skilað né skipt. 

Gallaðar vörur

Við afhendingu á vöru ber kaupendum að rannsaka vöru á þann hátt sem góð venja stendur til. Þegar 6 mánuðir eru liðnir frá móttöku vöru verður ekki hægt að skila gölluðum vörum enda á framleiðslugalli að vera kominn fram á þeim tíma. Framvísa þarf reikningi til staðfestingar að vara hafi verið keypt hjá Vefrúnu ehf. Senda þarf mynd af vöru ásamt staðfestingu á greiðslu á vefrun@vefrun.is.

Öllum skilaboðum er svarað innan 7 virkra daga.

Skilafrestur

 Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að vörur séu ónotaðar og þeim skilað í upprunalegu ástandi ásamt kassakvittun eða skilamiða. Fresturinn miðast við að vara sé komin aftur í hendur seljanda innan 14 daga. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að seljandi hefur móttekið vöruna. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Lagersöluvörum, útsöluvörum og metravöru fæst hvorki skipt né skilað og eru keyptar í því ástandi sem þær eru.

Inneignarnótur gilda ekki á útsölu né lagersölu

7

Verð

Vinsamlegast athugið að verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara.

Vefrún ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Skattar og gjöld

Öll verð í vefverslun eru reiknuð með virðisaukaskatti.

Inneignarnótur og gjafabréf

Inneignarnótur og gjafabréf gilda ekki á útsölu né lagersölu.

Inneignarnótur og gjafabréf

Inneignarnótur og gjafabréf gilda ekki á útsölu né lagersölu.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Um vörukaup gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000.

Aðrar upplýsingar

Aðrar upplýsingar

Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

7